Um klúbbinn
Velkomin á vef Merkilega klúbbsins. Klúbburinn er félagsskapur barna sem hafa það sameiginlega áhugamál að safna, fræðast og skipta á frímerkjum. Klúbburinn er starfræktur af Frímerkjasölu Póstsins.
Félagar í Merkilega klúbbnum eru í frímerkjaáskrift og í hvert sinn sem ný frímerki eru gefin út fá þeir sent sett í pósti. Sett eða frímerkjaröð eru eintök af frímerkjum með sama myndefni sem gefin eru út á sama degi.
Á hverju ári eru gefin út um 30 ný frímerki á fimm útgáfudögum. Ársútgáfan 2011 kostar 8.500 krónur.
Nýir félagar
Þegar þú gerist félagi í Merkilega klúbbnum þá færðu sendan til þín byrjunarpakka fyrir safnara sem kostar 790 krónur. Í byrjunarpakkanum eru:
- Taska
- 30 frímerki
- Stækkunargler
- Frímerkjatöng
- Frímerkjabók
- Leiðbeiningahefti
- Söluskrá yfir fáanleg frímerki
- Póstkort
- Límmiða
- Frímerkjapenna
Með þeim hlutum sem er að finna í byrjunarpakkanum getur þú haldið utan um frímerkjasafnið þitt og farið vel með það.
Smelltu á hnappinn til að gerast félagi, mundu að þú þarft aðstoð og samþykki áður en þú fyllir út umsóknina.
|